Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11718/2022)

Kvartað var yfir því að dómsmálaráðuneytið hefði ekki svarað erindi þar sem óskað var eftir endurskoðun á synjun á gjafsóknarbeiðni.

Ráðuneytið upplýsti að erindinu hefði nú verið svarað og því var ekki tilefni til að aðhafast frekar.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 29. júní 2022, sem hljóðar svo:

 

Vísað er til kvörtunar yðar 3. júní sl. fyrir hönd A og B yfir því að erindi þeirra til dómsmálaráðuneytisins 8. febrúar sl. hafi ekki verið svarað. Með erindinu var óskað eftir endurskoðun á synjun ráðuneytisins 1. sama mánaðar á gjafsóknarbeiðni þeirra.

Í tilefni af kvörtun yðar var ráðuneytinu ritað bréf 9. júní sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvort erindið hefði borist og þá hvað liði meðferð og afgreiðslu þess. Með svarbréfi ráðuneytisins 28. sama mánaðar var upplýst að erindinu hefði nú verið svarað.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu framangreinds erindis og nú liggur fyrir að því hefur verið svarað er ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna málsins og læt ég því athugun minni lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.