Einkaréttarlegt. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 11745/2022)

Kvartað var yfir lögfræðikostnaði hjá Motus.

Þar sem starfsemi þessa einkaaðila fellur ekki undir starfssvið umboðsmanns voru ekki skilyrði til að hann fjallaði um kvörtunina.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 29. júní 2022, sem hljóðar svo:

 

Vísað er til kvörtunar yðar 22. júní sl. yfir lögfræðikostnaði hjá Motus ehf.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns Alþingis til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga auk starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Önnur starfsemi einkaaðila fellur hins vegar ekki undir starfssvið umboðsmanns eins og það er afmarkað í lögum nr. 85/1997. Motus er einkahlutafélag og því einkaréttarlegur aðili. Af þeim sökum og þar sem annað á ekki við um kvörtunarefni yðar bresta lagaskilyrði til að kvörtunin verði tekin til frekari meðferðar.

Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 er umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið.