Atvinnuleysistryggingar.

(Mál nr. 11543/2022)

Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála.

Nefndin greindi frá því að ákveðið hefði verið að endurupptaka málið og því var ekki ástæða fyrir umboðsmann að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 13. september 2022.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 7. febrúar sl., fyrir hönd A, yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 3. febrúar sl. í máli nr. 559/2021.

Í tilefni af kvörtun yðar voru úrskurðarnefnd velferðarmála rituð bréf 22. febrúar og 9. maí sl. þar sem óskað var eftir annars vegar öllum gögnum málsins og hins vegar tilteknum upplýsingum og skýringum. Í svarbréfi nefndarinnar 7. júlí sl. kom fram að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að endurupptaka málið og að A hefði verið tilkynnt um það.

Í ljósi þess að nefndin hefur endurupptekið málið eru ekki efni til að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef A telur sig enn beittan rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu nefndarinnar getur hann eða þér fyrir hans hönd leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.