Almannatryggingar.

(Mál nr. 11752/2022)

Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um að meta umönnun vegna sonar viðkomandi til 2. flokks, 43% greiðslna, og þar með synjun stofnunarinnar við beiðni um hækkun umönnunarmats.  

Í kjölfar fyrirspurna umboðsmanns tilkynnti nefndin að hún hefði ákveðið að endurupptaka málið. Ekki voru því efni til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 7. október 2022, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 23. júní sl. yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 23. júní 2021 í máli nr. 135/2021. Með úrskurðinum stað­festi nefndin ákvörðun Tryggingastofnunar um að meta umönnun vegna sonar A til 2. flokks, 43% greiðslna, og þar með synjun stofnunarinnar við beiðni hennar um hækkun umönnunarmats.

Í tilefni af kvörtun yðar voru úrskurðarnefnd velferðarmála rituð bréf 28. júní og 15. september sl. þar sem óskað var eftir annars vegar öllum gögnum málsins og hins vegar tilteknum upplýsingum og skýringum. Í svarbréfi nefndarinnar 6. október sl. kom fram að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að endurupptaka málið.

Í ljósi þess að nefndin hefur endurupptekið málið eru ekki efni til að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef A telur sig enn beitta rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu nefndarinnar getur hún eða þér fyrir hennar hönd leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.