Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

(Mál nr. 11569/2022)

Kvartað var yfir úrskurðum úrskurðarnefndar um upplýsingamál.  

Í kjölfar fyrirspurna umboðsmanns komst nefndin að þeirri niðurstöðu að taka málin upp að nýju og því ekki efni til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 10. október 2022, sem hljóðar svo:

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 20. febrúar sl., yfir úrskurðum úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 977/2021 frá 22. febrúar 2021, nr. 1009/2021 frá 11. maí 2021 og nr. 1020/2021 frá 28. júní 2021.

Í tilefni af kvörtun yðar voru úrskurðarnefnd um upplýsingamál rituð bréf 25. mars og 22. ágúst sl. þar sem óskað var eftir annars vegar öllum gögnum framangreindra mála og hins vegar tilteknum upplýsingum og skýringum. Í svarbréfi nefndarinnar 6. október sl. kom fram að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu að taka framangreind mál upp að nýju.

Í ljósi þess að nefndin hefur endurupptekið málin eru ekki efni til að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef þér teljið yður enn beittan rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu nefndarinnar getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.