Gjafsókn.

(Mál nr. 11859/2022)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja umsókn um gjafsókn.

Í svari við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að ráðuneytið hefði ákveðið að endurupptaka málið og vísa beiðninni til meðferðar að nýju hjá gjafsóknarnefnd og lét umboðsmaður athugun sinni því lokið.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 15. nóvember 2022.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 26. september sl. fyrir hönd A yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins 31. ágúst sl. um að synja umsókn hennar um gjafsókn.

Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 18. október sl. þar sem þess var óskað að ráðuneytið veitti tilteknar upplýsingar og skýringar. Í svarbréfi ráðuneytisins 10. nóvember sl. kom fram að ráðuneytið hefði ákveðið að endurupptaka málið og vísa beiðni hennar um gjafsókn til meðferðar að nýju hjá gjafsóknarnefnd.

Með vísan til framangreinds eru ekki efni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég athugun minni á málinu því lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ef þér teljið umbjóðanda yðar enn rangsleitni beitta að fenginni nýrri niðurstöðu ráðuneytisins getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.