Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11930/2022)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á erindi.  

Í svari ráðuneytisins kom fram að erindinu hefði verið svarað skömmu áður en umboðsmaður spurðist fyrir um stöðu málsins og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. desember 2022.

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 22. nóvember sl. yfir töfum á afgreiðslu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á erindi 14. júlí sl. vegna beiðni um endurupptöku máls.

Í tilefni af kvörtun yðar var umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu ritað bréf 7. desember sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins.

Svar ráðuneytisins barst 14. desember sl. en með því fylgdi afrit af svarbréfi ráðuneytisins til yðar, dags. 10. nóvember sl., við erindi yðar 14. júlí sl.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum og í ljósi þess að ráðuneytið hefur nú brugðist við erindi yðar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.