Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11952/2022)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu heilbrigðisráðuneytisins á beiðni um upplýsingar um bónusgreiðslur til embættismanna og heilbrigðisstarfsmanna vegna COVID-19.

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns hjá ráðuneytinu voru upplýsingarnar veittar og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 6. janúar 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 8. desember sl. yfir töfum á afgreiðslu heilbrigðisráðuneytisins á beiðni yðar 5. október sl., um upplýsingar um bónusgreiðslur til embættismanna og heilbrigðisstarfsmanna vegna Covid-19. Erindi yðar var ítrekað 11. og 20. október sl., 26. nóvember og 2. desember sl.

Í tilefni af kvörtun yðar var heilbrigðisráðuneytinu ritað bréf 13. desember sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu beiðninnar.

Svar heilbrigðisráðuneytisins barst 29. desember sl. en þar kemur fram að sama dag hafi beiðni yðar verið svarað með tölvubréfi og upplýsingar veittar.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu framangreindrar beiðni og nú liggur fyrir að heilbrigðisráðuneytið hefur afgreitt hana tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.