Gjafsókn.

(Mál nr. 11757/2022)

Kvartað var yfir ákvörðunum dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðnum um gjafsókn. 

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns ákvað ráðuneytið að endurupptaka málið og óska eftir nýrri umsögn gjafsóknarnefndar. Ekki var því tilefni til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. janúar 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 27. júní sl. yfir ákvörðunum dómsmálaráðuneytisins 22. nóvember 2021 og 3. júní sl. um að synja beiðnum yðar um gjafsókn.

Í tilefni af kvörtuninni voru dómsmálaráðuneytinu rituð bréf 30. júní og 17. október sl. þar sem þess var annars vegar óskað að ráðuneytið afhenti umboðsmanni afrit af öllum gögnum málanna og hins vegar að veittar yrðu tilteknar upplýsingar og skýringar. Gögn málsins bárust umboðsmanni 26. ágúst sl. en í svarbréfi ráðuneytisins 11. janúar sl. kom fram að það hefði ákveðið að endurupptaka mál yðar og óska eftir nýrri umsögn gjafsóknarnefndar.

Með vísan til framangreinds eru ekki efni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég athugun minni á málinu því lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ef þér teljið yður enn rangsleitni beitta að fenginni nýrri niðurstöðu ráðuneytisins getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.