Gjafsókn.

(Mál nr. 11832/2022)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um gjafsókn. 

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns ákvað ráðuneytið að endurupptaka málið og óska eftir nýrri umsögn gjafsóknarnefndar. Ekki var því tilefni til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. janúar 2023.

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 8. september sl., f.h. A, yfir ákvörðun dómsmála­ráðu­neytisins 5. apríl 2022 um að synja beiðni hennar um gjafsókn.

Í tilefni af kvörtun yðar voru dómsmálaráðuneytinu rituð bréf 30. september og 14. desember sl. þar sem annars vegar var óskað eftir öllum gögnum málsins og hins vegar að veittar yrðu tilteknar upplýsingar og skýringar. Í svarbréfi ráðuneytisins 11. janúar sl. kom fram að það hefði ákveðið að endurupptaka mál yðar og óska á ný eftir umsögn gjafsóknarnefndar.

Í ljósi þess að ráðuneytið hefur endurupptekið málið eru ekki efni til að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef A telur sig enn beitta rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu nefndar­innar getur hún eða þér fyrir hennar hönd leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.