Dómstólar og réttarfar.

(Mál nr. 12007/2023)

Kvartað var yfir þyngingu refsingar sem gerð var með dómi Landsréttar í sakamáli.

Starfssvið umboðsmanns tekur ekki til starfa dómstóla og féll kvörtunarefnið því utan starfssviðs hans.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. janúar 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 9. janúar sl. yfir  refsingu sem yður var gerð með dómi Landsréttar í sakamáli á hendur yður. Nánar tiltekið lýtur kvörtunin að því að refsing yðar hafi verið þyngd með dómi Landsréttar.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélag á þann hátt, sem nánar greinir í lögunum, og að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Í 1. mgr. 3. gr. laganna er kveðið á um að starfssvið umboðsmanns taki til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga en samkvæmt b-lið 4. mgr. sömu greinar tekur það ekki til starfa dómstóla. Í samræmi við síðastnefnda ákvæðið fellur það utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um niðurstöður dómstóla, þ.á m. ákvörðun refsingar í sakamálum.

Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997  læt ég athugun minni á kvörtun yðar lokið.