Almannatryggingar.

(Mál nr. 12053/2023)

Kvartað var yfir endurreikningi Tryggingastofnunar á greiðslum í kjölfar þess að henni var sent skattframtal.

Ekki varð séð að endurreikningurinn hefði verið borinn undir úrskurðarnefnd velferðarmála og því ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um málið að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. febrúar 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar, sem barst umboðsmanni 13. febrúar sl. Af kvörtuninni má ráða að hún beinist að endurreikningi Tryggingastofnunar á greiðslum til yðar í kjölfar þess að þér senduð stofnuninni skattframtal yðar.

Kvörtuninni fylgdi bréf frá Tryggingastofnun 27. október sl. þar sem yður er tilkynnt ákvörðun stofnunarinnar um  endurreikning og uppgjör tekjutengdra á greiðslna til yðar vegna ársins 2021. Í niðurlagi bréfsins kemur fram að heimilt sé að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ákvarðanir Tryggingastofnunar um endurreikning og uppgjör lífeyristrygginga eru reistar á 7. mgr. 16. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, þar sem kveðið er á um að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Komi í ljós við slíkan endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar skal Tryggingastofnun draga hinar ofgreiddu bætur frá bótum sem bótaþegi kann síðar að öðlast rétt til og öðlast einnig endurkröfurétt á hendur bótaþega, á grundvelli 8. mgr. 16. gr. og 1. mgr. 55. gr. laganna.

Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu.    Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 er heimilt að kæra ákvarðanir Tryggingastofnunar um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu þeirra til úrskurðarnefndar velferðarmála og skal það gert innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 2. mgr. greinarinnar, svo sem yður var leiðbeint um í téðu bréfi stofnunarinnar til yðar. Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að þér hafið freistað þess að bera ofangreindan endurreikning Tryggingastofnunar undir úrskurðarnefnd velferðarmála. Brestur af þessum sökum lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til meðferðar að svo stöddu.

Í tilefni af því að svo virðist sem þriggja mánaða kærufrestur 2. mgr. 13. laga nr. 100/2007 sé nýlega liðinn tel ég rétt að benda yður á að í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um þá aðstöðu þegar kæra berst að liðnum kærufresti. Þannig segir í 1. mgr. 28. gr. að hafi kæra borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá, nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr., eða veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. sömu málsgreinar. Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila, sbr. 2. mgr. Þér getið þannig freistað þess að bera málið undir úrskurðarnefnd velferðarmála þótt kærufrestur samkvæmt lögum nr. 37/1993 kunni að vera liðinn ef þér teljið að þessi skilyrði séu uppfyllt. Með þessari ábendingu hefur þó engin afstaða verið tekin til þess hver ættu að vera viðbrögð nefndarinnar við slíkri beiðni.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.