Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 12046/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu Vinnumálastofnunar á beiðni um upplýsingar um greiðslur og frádrátt til viðkomandi frá stofnuninni. 

Í ljós kom að Vinnumálastofnun hafði svarað erindinu og í kjölfarið tekið nýja ákvörðun. Því var ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. mars 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 6. febrúar sl. yfir töfum á afgreiðslu Vinnumálastofnunar á beiðni yðar 1. desember 2022, um upplýsingar um greiðslur og frádrátt frá stofnuninni til yðar á síðasta ári. Erindi yðar var ítrekað 6. og 22. sama mánaðar.

Í tilefni af kvörtun yðar var Vinnumálastofnun ritað bréf 16. febrúar sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins.

Svar Vinnumálastofnunar barst 6. mars sl. en þar kemur fram að 8. febrúar sl. hafi beiðni yðar verið svarað með tölvubréfi og umbeðnar upplýsingar veittar. Jafnframt kemur þar fram að ný ákvörðun hafi verið tekin í máli yðar og hún kynnt yður með bréfpósti, tölvubréfi og á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar 2. mars sl.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu framangreindrar beiðni og nú liggur fyrir að Vinnumálastofnun hefur afgreitt hana tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.