Samgöngumál.

(Mál nr. 12079/2023)

Kvartað var yfir viðskiptum við bílaleigu.  

Þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til þessarar starfsemi einkaaðila voru ekki skilyrði til að hann fjallaði um kvörtunina.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. mars 2023. 

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 5. mars sl. yfir viðskiptum yðar við bílaleiguna X.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið hans til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga en ekki til starfsemi einkaaðila nema að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. X er hlutafélag og því einkaréttarlegur aðili. Af þeim sökum og þar sem annað á ekki við um kvörtunarefnið fellur það utan starfssviðs umboðs­manns að fjalla um kvörtun yðar.

Með vísan til þess sem er rakið að framan eru ekki uppfyllt lagaskilyrði til að kvörtun yðar verði tekin til meðferðar og er athugun á henni því lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.