Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Fullnusta refsinga.

(Mál nr. 12076/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á stjórnsýslukæru vegna synjunar á beiðni um frestun á afplánun.

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns svaraði ráðuneytið erindinu og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. maí 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar frá 2. mars sl. f.h. A vegna tafa á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á stjórnsýslukæru frá 3. nóvember 2021. Lýtur kæran að synjun á beiðni A um frestun á afplánun.

Í tilefni af kvörtuninni var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 14. mars sl. þar sem þess var óskað að upplýst yrði hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Í svari ráðuneytisins 16. maí sl. kemur fram að erindi yðar hafi verið svarað með bréfi ráðuneytisins sama dag. Fylgdi svarinu afrit af bréfi ráðuneytisins til yðar.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu máls yðar og nú liggur fyrir að ráðuneytið hefur lokið því tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.