Gjafsókn.

(Mál nr. 12156/2023)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins að synja beiðni um gjafsókn.  

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns greindi ráðuneytið frá því að ákveðið hefði verið að endurupptaka málið og óska á ný eftir umsókn gjafsóknarnefndar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 8. júní 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 21. apríl sl., fyrir hönd A, yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins 2. febrúar sl. um að synja beiðni hans um gjafsókn.

Í tilefni af kvörtun yðar var dómsmálaráðuneytinu ritað bréf 10. maí sl. þar sem meðal annars var óskað eftir öllum gögnum málsins og hins vegar að veittar yrðu tilteknar upplýsingar og skýringar. Í svarbréfi ráðuneytisins 7. júní sl. kom fram að það hefði ákveðið að endurupptaka mál yðar og óska á ný eftir umsókn gjafsóknarnefndar.

Í ljósi þess að ráðuneytið hefur endurupptekið málið eru ekki efni til að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu og læt ég því athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef A telur sig enn beittan rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu nefndarinnar getur hann eða þér fyrir hans hönd leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.