Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Þinglýsingar.

(Mál nr. 12200/2023)

Kvartað var yfir því að sýslumaðurinn á Vestfjörðum hefði ekki svarað erindi.  

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns var erindinu svarað og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 5. júní 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 19. maí sl. yfir því að sýslumaðurinn á Vestfjörðum hafi ekki svarað erindi yðar 27. mars um þinglýsingu afsala.

Í tilefni af kvörtuninni var sýslumanninum ritað bréf 23. maí sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvort erindið hefði borist og þá hvað liði meðferð og afgreiðslu þess. Svar sýslumannsins barst 2. júní sl. en þar kemur fram að erindi yðar hafi verið svarað 1. júní.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum og í ljósi þess að sýslumaðurinn hefur nú svarað erindi yðar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1992, um umboðsmann Alþingis.