Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Útlendingar. Ríkisborgararéttur.

(Mál nr. 12237/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsókn um ríkisborgararétt.  

Stofnunin greindi umboðsmanni frá því að nú hefði verið tekin ákvörðun og ætti viðkomandi von á bréfi með niðurstöðu málsins. Ekki var því ástæða til að hafast frekar að.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. júlí 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 9. júní sl., fyrir hönd A, sem lýtur að töfum á afgreiðslu Útlendingastofnunar á umsókn hans um ríkisborgararétt.

Í tilefni af kvörtuninni var Útlendingastofnun ritað bréf 22. júní sl. þar sem óskað var eftir að stofnunin veitti upplýsingar um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknarinnar. Nú hefur borist svarbréf frá stofnuninni 29. sama mánaðar þar sem gerð er grein fyrir meðferð málsins og tekið fram að ákvörðun hafi verið tekin í því og A eigi von á bréfi frá stofnuninni með niðurstöðu málsins.

Í ljósi framangreinds tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.