Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Samgöngumál.

(Mál nr. 12238/2023)

Kvartað var yfir töfum á meðferð máls hjá Samgöngustofu.  

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns var erindinu svarað og Samgöngustofa greindi frá því að verklag í sambærilegum málum hefði verið tekið til endurskoðunar. Ekki var því ástæða til að hafast frekar að.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. júlí 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 12. júní sl. sem beindist að Samgöngustofu og laut að töfum á meðferð máls vegna ágreinings við flugrekanda um greiðslu bóta vegna flugs sem var aflýst.

Í tilefni af erindi yðar var Samgöngustofu ritað bréf 15. júní sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvað liðið meðferð og afgreiðslu málsins og hvort yður hefði verið tilkynnt um tafir á afgreiðslu þess. Sama dag upplýstuð þér um að Samgöngustofa hefði leyst úr málinu. Nú hefur jafnframt borist bréf Samgöngustofu 29. júní sl., sem fylgir hjálagt í ljósriti, þar sem m.a. kemur fram að verklag í sambærilegum málum og yðar hafi verið tekið til endurskoðunar.

Í ljósi framangreinds og þar mál yðar hefur nú hlotið afgreiðslu tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.