Gjafsókn.

(Mál nr. 12215/2023)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um gjafsókn.  

Í svari ráðuneytisins kom fram að ákveðið hefði verið að endurupptaka málið og því var ekki tilefni til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. júlí 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar f.h. A 31. maí sl. sem beinist að dómsmálaráðuneytinu og lýtur að ákvörðun þess 4. apríl sl. um synja beiðni hans um gjafsókn

Í tilefni af kvörtun yðar var, með bréfi 19. júní sl., óskað eftir tilteknum upplýsingum og skýringum frá dómsmálaráðuneytinu. Nú hafa borist svör ráðuneytisins með bréfi 14. júlí sl. sem fylgir hjálagt í ljósriti. Þar kemur fram að ákveðið hafi verið að endurupptaka mál A. Í því virtu tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar að svo stöddu. Ég tek þó fram að ef A telur sig enn beittan rangsleitni að fenginni nýrri niður­stöðu ráðuneytisins getur hann leitað til mín að nýju vegna þess.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.