Gjafsókn.

(Mál nr. 12221/2023)

Kvartað var yfir ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að synja beiðni um gjafsókn.  

Í svari ráðuneytisins kom fram að ákveðið hefði verið að endurupptaka málið og því var ekki tilefni til að aðhafast frekar.

    

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. ágúst 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 1. júní sl. sem beinist að dómsmálaráðuneytinu og lýtur að ákvörðun þess 28. nóvember 2022 um að synja beiðni yðar um gjafsókn

Í tilefni af kvörtun yðar var, með bréfi 19. júní sl., óskað eftir tilteknum upplýsingum og skýringum frá dómsmálaráðuneytinu. Nú hafa borist svör ráðuneytisins með bréfi 14. júlí sl. sem fylgir hjálagt í ljósriti. Þar kemur fram að ákveðið hafi verið að endurupptaka mál yðar. Að því virtu tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar. Ég tek þó fram að ef þér teljið yður enn beitta rangsleitni að fenginni nýrri niður­stöðu ráðuneytisins getið þér leitað til mín að nýju vegna þess.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.