Kvartað var yfir tökmörkunum lögreglustjórans á Suðurnesjum á aðgengi að gosstöðvum við Litla Hrút á Reykjanesskaga.
Ekki varð ráðið að lögreglan hefði meinað viðkomandi um för á svæðið eða haft af honum önnur afskipti. Kvörtunin laut því ekki að tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds sem snerti hagsmuni hans og því ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um hana.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. ágúst 2023.
Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 24. júlí sl. sem beinist að lögreglustjóranum á Suðurnesjum og lýtur að takmörkunum á aðgengi að gosstöðvum við Litla Hrút á Reykjanesskaga. Af kvörtuninni verður ráðið að þér teljið þær ónauðsynlegar og að þær takmarki ferðafrelsi.
Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögunum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umboðsmanni Alþingis er þannig ætlað að hafa eftirlit með því að borgararnir fái notið þeirra efnislegu réttinda sem löggjafinn hefur kveðið á um og meðferð mála þeirra sé í samræmi við lög.
Hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit umboðsmanns Alþingis getur kvartað af því tilefni til hans, sbr. 2. mgr. 4. gr. fyrrnefndra laga. Af þessu leiðir að kvörtun til umboðsmanns Alþingis að lúta að tilteknum athöfnum eða ákvörðunum stjórnvalda sem beinast að þeim sem leggur fram kvörtun eða snerta beinlínis lögverndaða hagsmuni hans eða réttindi. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir að umboðsmaður veiti almennar álitsgerðir samkvæmt beiðni eða svari almennum lögspurningum. Af þessu leiðir einnig að umboðsmaður úrskurðar ekki um réttindi eða skyldur einstaklinga og lögaðila vegna samskipta þeirra við stjórnvöld heldur veitir hann, að tilteknum lögbundnum skilyrðum fullnægðum, þeim sem þess óskar álit sitt á því, eftirá, hvort stjórnsýsla hafi farið fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og þær siðareglur sem tilgreindar eru í lögunum.
Af kvörtun yðar, eins og hún er sett fram, verður ekki ráðið að lögregla hafi meinað yður för um umrætt svæði eða haft af yður önnur afskipti. Það verður þannig ekki séð að hún lúti að tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds í framangreindum skilningi, þ.e. þau atriði sem þér tilgreinið í kvörtun yðar snerta ekki hagsmuni yðar eða réttindi með beinum hætti umfram aðra. Það er því ljóst að lagaskilyrði brestur til þess að kvörtun yðar verði tekin til frekari athugunar. Hins vegar bendi ég á að umboðsmaður hefur, í áliti 23. maí sl. í máli nr. F117/2022, fjallað með almennum hætti um heimildir laga nr. 82/2008, um almannavarnir, til takmörkunar á ferðafrelsi. Álitið er birt af vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.
Með vísan til framangreinds er umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.