Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Landbúnaður. Eftirlit stjórnsýsluaðila.

(Mál nr. 12315/2023)

Kvartað var yfir því að matvælaráðuneytið hefði ekki svarað ítrekuðu erindi.  

Í svari frá ráðuneytinu kom fram að erindinu hefði verið svarað og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. ágúst 2023.

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 28. júlí sl. sem beinist að matvælaráðuneytinu og lýtur að því að ráðuneytið hafi ekki svarað erindi yðar 12. apríl sl., ítrekuðu með tölvubréfi 10. júlí sl. Erindið varðaði m.a. eftirlit með sauðfé á riðuveikisvæðum í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.

Í tilefni af kvörtun yðar var matvælaráðuneytinu ritað bréf 1. ágúst sl. þar sem þess var óskað að það upplýsti hvor erindið hefði borist og hvað liði þá meðferð og af­greiðslu þess. Samdægurs barst svar frá ráðuneytinu þar sem fram kemur að erindi yðar hafi verið svarað 31. júlí sl.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að því að erindi yðar hafi ekki verið svarað og þar sem það hefur nú verið gert tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.