Skattar og gjöld. Vanrækslugjald.

(Mál nr. 12320/2023)

Kvartað var yfir álagningu vanrækslugjalds vegna ökutækis.  

Þar sem erindið hafði ekki verið borið undir innviðaráðuneytið þá voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um málið.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. ágúst 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 2. ágúst sl. sem þér beinið að sýslumanninum á Vestfjörðum og lýtur að álagningu vanrækslugjalds vegna ökutækisins [...] sem er í eigu og umráðum B. Kvörtunin byggist einkum á því að gjaldið hafi verið lagt á án viðvörunar og í því sambandi bent á að skoðunardagur hafi verið færður fram í maí með breytingu á reglugerð.

Um álagningu og innheimtu vanrækslugjalds er fjallað í 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og VIII. kafla reglugerðar nr. 414/2021, um skoðun öku­tækja. Samkvæmt þessum ákvæðum er það hlutverk sýslumannsins á Vest­fjörðum að leggja á og innheimta vanrækslugjald á grundvelli reglna sem ráðherra hefur sett með stoð í e-lið 3. mgr. 74. gr. umferðarlaga. Innviðaráðuneytið fer með mál er varða eftirlit með umferð ökutækja, sbr. l-lið 2. tölul. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 6/2022.

Ástæða þess að athygli yðar er vakin á framangreindu er að í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmanns Alþingis, er kveðið á um að megi skjóta máli til æðra stjórnvalds sé ekki unnt að kvarta til umboðs­manns fyrr en það hafi fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði byggist á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að ákvörðun sem sýslumaðurinn á Vestfjörðum hefur tekið á grundvelli reglna sem nú heyra undir innviða­ráðherra, sem fer með yfirstjórn málaflokksins, tel ég rétt að þér freistið þess að bera erindi yðar vegna ákvörðunarinnar undir ráðuneyti hans, sbr. þau sjónarmið sem 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 byggist á. Ef þér kjósið að gera það en B telur sig enn beitta rangsleitni að fenginni niðurstöðu ráðuneytisins getur hún eða þér fyrir hennar hönd og eftir umboði leitað til mín á nýjan leik.

Með vísan til þess sem er rakið að framan er athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.