Skattar og gjöld. Álagning stöðubrotsgjalds

(Mál nr. 12282/2023)

Kvartað var yfir álagningu stöðubrotsgjalds og synjun við beiðni á endurskoðun þeirrar ákvörðunar.  

Í svari frá Reykjavíkurborg kom fram að málið hefði verið fellt niður og gjaldið endurgreitt og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. ágúst 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 5. júlí sl. vegna álagningar stöðubrotsgjalds á yður vegna lagningar ökutækisins [...] 23. maí sl. sem og synjun við beiðni um endurskoðun þeirrar ákvörðunar.

Í tilefni af kvörtun yðar var óskað eftir gögnum málsins með bréfi til Reykjavíkurborgar 6. júlí sl. Umbeðin gögn bárust ásamt bréfi sveitarfélagsins 3. ágúst sl., sem fylgir hjálagt í ljósriti, þar sem m.a. kemur fram að málið hafi verið fellt niður og gjaldið endurgreitt.

Í ljósi framangreinds tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna málsins og læt athugun minni lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.