Almannavarnir. Ferðafrelsi. Almannaréttur.

(Mál nr. 12332/2023)

Kvartað var yfir embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og Ríkislögreglustjóra vegna lokana fyrir umferð gangandi fólks að gosstöðvum við Litla-Hrút.  

Ekki varð ráðið að viðkomandi hefði verið meinuð för um svæðið eða lögregla haft af honum nokkur afskipti. Ekki voru því skilyrði til að umboðsmaður fjallaði frekar um málið.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. september 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar 14. ágúst sl. sem þér beinið að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og Ríkislögreglustjóra. Af kvörtuninni verður ráðið að hún lúti að lokunum fyrir umferð gangandi fólks að gosstöðvunum við Litla-Hrút, sbr. tilkynningu lögreglustjórans 11. júlí sl.

Hlutverk umboðsmanns Alþingis er að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og tilgreindar siðareglur, sbr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Umboðsmanni Alþingis er þannig ætlað að hafa eftirlit með því að borgararnir fái notið þeirra efnislegu réttinda sem löggjafinn hefur kveðið á um og meðferð mála þeirra sé í samræmi við lög.

Samkvæmt 4. gr. laga nr. 85/1997 getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit umboðsmanns samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna kvartað af því tilefni til hans. Í athugasemdum við ákvæðið í greinargerð með því frumvarpi sem varð að lögum nr. 85/1997 kemur fram að aðrir geti ekki borið fram kvörtun en þeir sem haldi því fram að þeir hafi sjálfir orðið fyrir rangsleitni af hálfu stjórnvalda. Af þessu leiðir að kvörtun til umboðsmanns Alþingis að lúta að tilteknum athöfnum eða ákvörðunum stjórnvalda sem beinast að þeim sem leggur fram kvörtun eða snerta beinlínis lögverndaða hagsmuni hans eða réttindi. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir að umboðsmaður veiti almennar álitsgerðir samkvæmt beiðni eða svari almennum lögspurningum.

Af kvörtun yðar, eins og hún er sett fram, verður ekki ráðið að lögregla hafi meinað yður för um umrætt svæði eða haft af yður önnur afskipti. Það verður þannig ekki séð að hún lúti að tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds í framangreindum skilningi þannig að þau atriði sem þér tilgreinið í kvörtun yðar snerti hagsmuni yðar eða réttindi með beinum hætti umfram aðra. Brestur því lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til frekari athugunar. Ég bendi þó á að umboðsmaður hefur í áliti 23. maí sl. í máli nr. F117/2022 fjallað með almennum hætti um heimildir laga nr. 82/2008, um almannavarnir, til takmörkunar á ferðafrelsi. Álitið er birt af vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.

Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 lýk ég hér með umfjöllun minni vegna kvörtunar yðar.