Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Félagsþjónusta og félagsleg aðstoð . Húsnæðismál.

(Mál nr. 12223/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu Reykjavíkurborgar á umsókn um félagslegt húsnæði.  

Af svörum Reykjavíkurborgar til umboðsmanns varð ráðið að málið væri í farvegi. Tafir innan málaflokksins virtust almennar en ekki bundnar við þetta mál sérstaklega og taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. september 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmann Alþingis 2. júní sl. yfir því að Reykjavíkurborg hafi enn ekki afgreitt umsókn yðar um félagslegt húsnæði hjá Reykjavíkurborg.

Í tilefni af kvörtun yðar var Reykjavíkurborg ritað bréf 16. júní sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um í hvaða farvegi mál yðar væri hjá sveitarfélaginu. Svar Reykjavíkurborgar barst 7. september sl. en þar kemur fram að umsóknum yðar um almennt félagslegt leiguhúsnæði hafi verið synjað í þrígang frá árinu 2009 þar sem umsóknir yðar uppfylltu ekki skilyrði 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur. Því næst segir að nýjasta umsókn yðar frá 13. febrúar 2023 hafi verið metin til 10 stiga samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar vegna úthlutunar félagslegs leiguhúsnæði en samkvæmt reglum þurfi umsókn að vera metin til að minnsta kosti tíu stiga til að vera samþykkt á biðlista og téð umsókn sé því sem stendur á biðlista hjá sveitarfélaginu. Þá segir í bréfinu að í árslok 2022 hafi fjöldi umsókna á biðlista eftir tveggja herbergja íbúð verið alls 589 og meðalbiðtími eftir úthlutun sé 21 mánuður.

Í ljósi framangreinds fæ ég ekki annað ráðið en að umsókn yðar um félagslegt húsnæði sé í farvegi hjá sveitarfélaginu. Í ljósi þess og þeirra skýringa sem ég hef fengið fyrir þeirri stöðu sem uppi er hvað varðar málshraða tel ég ekki ástæðu til að aðhafast sérstaklega í máli yðar að svo stöddu en ekki liggur annað fyrir en að tafir innan málaflokksins séu almennar og ekki bundnar við mál yðar sérstaklega. Hef ég því ákveðið að ljúka meðferð minni á kvörtun yðar með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Vegna kvörtunar yðar og þeirrar stöðu sem uppi er í máli yðar tel ég rétt að benda yður á að samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er heimilt að kæra óhæfilegar tafir á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds, sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Í ljósi þessa bendi ég yður á að samkvæmt að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, er heimilt að kæra stjórnvalds­ákvarðanir teknar samkvæmt þeim lögum til úrskurðarnefndar velferðarmála. Ef þér teljið sérstakt tilefni til getið þér getið því freistað þess að kæra tafir á málsmeðferð Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðar-mála. Teljið þér yður enn beitta rangsleitni að fenginni niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála, getið þér leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á máli þessu lokið.