Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 12373/2023)

Kvartað var yfir skorti á svörum frá dómsmálaráðherra við erindi.  

Ekki varð séð að erindið hefði verið ítrekað við ráðherra eða ráðuneytið og þeim sökum ekki nægilegt tilefni til að umboðsmaður aðhefðist að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. október 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 18. september sl., en sá skilningur verður lagður í hana að hún beinist fyrst og fremst að dómsmálaráðherra. Kemur fram í kvörtuninni að þér hafið beint fyrirspurn til ráðherra 22. mars sl., sem lotið hafi að vistun yðar og [...] á meðferðarheimilinu í X og á Y, og ekki enn fengið svör við henni.

Stjórnvöldum ber almennt að bregðast við erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa, sbr. eftir atvikum meginreglu 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Það hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkuð svigrúm í þessu efni. Þá hef ég einnig litið svo á að rétt sé að sá sem ber fram kvörtun vegna þess að dráttur hafi orðið á að stjórnvald svari erindi leiti fyrsta kastið sjálfur til stjórnvaldsins með ítrekun á erindinu og gefi því þannig færi á að bregðast við áður en leitað er til mín með kvörtun. Af þeim gögnum sem borist hafa vegna kvörtunar yðar verður ekki ráðið að þér eða [...], sem stóð að erindinu ásamt yður, hafið ítrekað erindið við dómsmálaráðherra eða ráðuneytið. Af þeim sökum tel ég að svo stöddu ekki nægilegt tilefni til aðhafast sérstaklega vegna þeirra tafa sem orðið hafa á viðbrögðum ráðherrans við því.

Í samræmi við framangreint lýk ég hér með umfjöllun minni um mál yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek fram að þér getið leitað til mín á nýjan leik verði óhóflegur dráttur á svörum ráðuneytisins að undangengnum ítrekunum. Vegna þess sem fram kemur í kvörtun yðar tel ég einnig rétt að taka hér fram að í júní sl. tók Guðrún Hafsteinsdóttir við sem dómsmálaráðherra. Þar sem jafnframt verður ráðið að þér hafið beint erindinu á tölvupóstfang ráðherrans sjálfs vek ég athygli yðar á því að almennt póstfang ráðuneytis hennar er dmr@dmr.is