14. nóvember 2012

Afgreiðsla mála í október 2012

Hinn 1. nóvember sl. höfðu umboðsmanni Alþingis borist alls 444 kvartanir frá áramótum og hann hafði á sama tíma tekið tvö mál til athugunar að eigin frumkvæði.

Á sama tíma árið 2011 höfðu umboðsmanni borist 437 kvartanir og hann hafði tekið upp átta frumkvæðismál. Málum hefur því fjölgað um 1,6% miðað við sama tíma í fyrra. 

Í október 2012  lauk umboðsmaður athugun sinni á 53 málum. Nýjar kvartanir í mánuðinum voru 49 talsins. Um mánaðamótin október-nóvember voru alls 192 mál til athugunar hjá umboðsmanni. Til samanburðar má geta þess að á sama tíma í fyrra voru 176  mál til athugunar. Þá bárust 42 kvartanir og athugun var lokið á 44 málum í október 2011.