Umboðsmaður hefur lokið athugun sinni á fyrirkomulag eftirlits með blóðmerahaldi. Athugun umboðsmanns beindist að umfangi þess og skipulagi en einnig var sjónum beint að því mati sem fram fer þegar ákvörðun er tekin um hvort viðurlögum sé beitt eða háttsemi kærð til lögreglu.
Í ljósi skýringa Matvælastofnunar og gagna sem fylgdu svari hennar þótti ljóst að mat stofnunarinnar á viðbrögðum við því þegar út af bregður í eftirlitsskyldri starfsemi tekur mið af mörgum ólíkum þáttum á sérfræðisviði dýralækna sem hafa matið með höndum að stórum hluta. Í ljósi þess hefði umboðsmaður takmarkaður forsendur til að gera athugasemdir við starfshætti stofnunarinnar að þessu leyti. Þar að auki varð ekki betur séð en að ákvörðun um beitingu viðurlaga eða kæru til lögreglu væri reist á málefnalegum sjónarmiðum og fullnægjandi gögnum.
Áfram verða hafðar gætur á stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og atriði þar að lútandi eftir atvikum tekin til athugunar að nýju ef þörf er á.
Mál nr. F7/2025
Tengd frétt
Óskað eftir upplýsingum frá MAST