20. maí 2026

Óskað eftir upplýsingum um öryggisúttekt á húsnæði Stuðla

Barna- og fjölskyldustofa hefur verið beðin um upplýsingar um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla sem hýsir neyðarvistun.

Umboðsmanni barst ábending um að mögulega hafi ekki legið fyrir vottorð um öryggisúttekt, að minnsta kosti ekki eftir að starfsemi neyðarvistunar hófst þar aftur eftir bruna sem varð haustið 2024. Barna- og fjölskyldustofa er því beðin um tilteknar upplýsingar þar að lútandi svo unnt sé að meta hvort tilefni sé til að skoða málið nánar á grundvelli frumkvæðisheimildar umboðsmanns.

  

  

Bréf umboðmanns til Barna- og fjölskyldustofu