22. júní 2026

OPCAT-eftirlit á Vestfjörðum og Vesturlandi

Fyrr í þessum mánuði fór umboðsmaður ásamt fjögurra manna teymi í eftirlitsferð í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Ísafirði, á hjúkrunarheimilið Fellsenda í Dölum og í Fangelsið Kvíabryggju. Heimsóknirnar eru liður í OPCAT-eftirliti hennar með aðstæðum frelsissviptra.

Á Ísafirði var fangageymsla lögreglunnar skoðuð og farið yfir verklag og starfshætti við vistun einstaklinga þar. Enginn vistaðist í fangageymslunni meðan á heimsókninni stóð en rætt var við stjórnendur og starfsfólk.

Í heimsókninni á Fellsenda var aðbúnaður og húsakostur skoðaður og rætt við íbúa og starfsfólk.

Heimsóknin á Kvíabryggju var liður í eftirfylgni með skýrslu umboðsmanns frá árinu 2022. Tilgangur heimsóknarinnar var að kanna hvort og þá með hvaða hætti brugðist hefði verið við tilmælum og ábendingum umboðsmanns í þeirri skýrslu.