26. júní 2026

Grænlenski umboðsmaðurinn í heimsókn

Gedion Jeremiassen, umboðsmaður Inatsisartut (grænlenska þingsins), kom í vikunni í heimsókn til umboðsmanns Alþingis ásamt Lars-Christian Sinkbæk yfirlögfræðingi við embættið.

Á fundi þeirra var meðal annars rætt um starfsemi beggja embætta, áskoranir og nýjungar. Sérstaklega var fjallað um OPCAT-eftirlit með aðstæðum frelsissviptra hér á landi og hvernig því væri háttað.

  

ISL GREENL.jpeg

  

Kristín Benediktsdóttir og Gedion Jeremiassen