Afgreiðsla þróunarsjóðs námsgagna á beiðni um aðgang að tilteknum gögnum, sem byggt var á við synjun á umsókn viðkomandi um styrk úr sjóðnum, var ekki í samræmi við stjórnsýslulög.
Um var að ræða tvö matsblöð. Annars vegar frá utanaðkomandi sérfræðingi og hins vegar stjórnarmanni sjóðsins. Vísaði sjóðurinn til þess að þetta væru vinnugögn sem ekki væri skylt að afhenda. Umboðsmaður benti á að matsblað sérfræðingsins gæti ekki talist vinnuskjal í skilningi stjórnsýslulaga og því hefði synjun á afhendingu blaðsins ekki verið afgreidd á réttum lagagrundvelli. Þá hefði synjun á aðgangi að matsblaði stjórnarmannsins, sem teldist vinnuskjal, ekki heldur verið í samræmi við þau ákvæði stjórnsýslulaga sem um það giltu. Að auki hefði synjun sjóðsins ekki verið rökstudd. Afgreiðsla sjóðsins á upplýsingabeiðninni hefði því ekki fullnægt kröfum stjórnsýslulaga.
Var því beint til þróunarsjóðs námsgagna að leysa úr beiðni um aðgang að gögnunum í samræmi við sjónarmiðin í álitinu ef eftir því yrði leitað.
Álit umboðsmanns í máli nr. 267/2025