Athugun á málsmeðferð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við afturköllun skotvopnaleyfa er lokið í framhaldi af því að dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að gefa út leiðbeiningar um slíka málsmeðferð.
Í málinu vakti sérstaka athygli umboðsmanns að lögreglustjóri virtist samtímis tilkynna um afturköllun leyfis og bjóða viðkomandi að koma á framfæri andmælum. Var því óskað eftir upplýsingum um hvort slík málsmeðferð tíðkaðist almennt hjá embættinu og við hvaða aðstæður. Þá var óskað eftir rökstuddri afstöðu til þess hvort og hvernig þetta samrýmdist stjórnsýslulögum.
Í tilefni svara lögreglustjóra var óskað eftir afstöðu dómsmálaráðherra til þeirra, auk tilgreindra upplýsinga. Ráðuneytið upplýsti að ákveðið hefði verið að leiðbeina lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og öðrum lögregluembættum á um að betur samræmist stjórnsýslulögum að tilkynna um fyrirhugaða afturköllun og gefa kost á andmælum áður en ákvörðun um afturköllun er tekin. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að halda athuguninni áfram.
Mál nr. F4/2026
Tengd frétt
Lögreglustjóri beðinn um upplýsingar um málsmeðferð vegna afturköllunar skotvopnaleyfa