15. september 2026

Ákvörðun framhaldsmenntunarráðs lækninga kæranleg til heilbrigðisráðuneytis

Að mati umboðsmanns eru ákvarðanir framhaldsmenntunarráðs lækninga kæranlegar til heilbrigðisráðuneytis. 

Kvartað var til umboðsmanns yfir ákvörðun ráðsins um mat á námstíma í sérnámi. Heilbrigðisráðuneytið taldi ákvarðanir framhaldsmenntunarráðsins ekki stjórnvaldsákvarðanir og því ekki kæranlegar til þess. Umboðsmaður benti á að niðurstaða ráðsins í málinu hefði varðað réttindi viðkomandi og skyldur að lögum, m.a. þar sem ákvörðunin gæti haft áhrif á launakjör og faglega stöðu hans. Niðurstaða umboðsmanns var að í málinu væri því um stjórnvaldsákvörðun að ræða sem væri kæranleg til helbrigðisráðuneytisins á grundvelli stjórnsýslulaga.

   

    

Álit umboðsmanns í máli nr. 255/2025