25. september 2026

Annmarkar á málsmeðferð lögreglustjóra og ríkissaksóknara

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og ríkissaksóknari höguðu málsmeðferð vegna eignaspjalla ekki í samræmi við lög.

Að mati umboðsmanns fullnægði lögreglustjóri ekki leiðbeiningarskyldu gagnvart brotaþolum við skýrslutöku eða í leiðbeiningarbréfi í máli sem varðaði eignaspjöll. Málið var hvorki nægilega upplýst áður en ákvörðun var tekin né niðurstaðan rökstudd. Þá hagaði ríkissaksóknari meðferð sinni á málinu hvorki í samræmi við þessa annmarka né aflaði upplýsinga um eðli erindis áður en það var lagt í farveg stjórnsýslukæru. Jafnframt vantaði upp á að ríkissaksóknari leiðbeindi brotaþolum og rannsakaði málið með fullnægjandi hætti áður en hann staðfesti ákvörðun lögreglustjóra. Að síðustu bendir umboðsmaður á að ríkissaksóknara ber að rækja verkefni sín og forgangsraða þeim þannig að eftir fremsta megni sé girt fyrir að réttarspjöll verði, til að mynda ef frestur til að krefjast málshöfðunar rennur sitt skeið án lögbundinnar leiðbeiningar og rannsóknar.  

  

  

Álit umboðsmanns í máli nr. 92/2025