Skattar og gjöld. Ýmis þjónustugjöld.

(Mál nr. 6963/2012)

A kvartaði yfir skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands og spurði með vísan til a-liðar 2. mgr. 24. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla, þar sem fram kemur að skrásetningargjöld skuli ekki skila háskóla hærri tekjum en sem nemur samanlögðum útgjöldum háskóla vegna nemendaskráningar og þjónustu við nemendur sem ekki telst til kostnaðar við kennslu og rannsóknastarfsemi, hvort eðlilegt gæti talist að háskólaráð ákvæði eitt almennt gjald 60.000 kr. gjald fyrir alla nemendur háskólans, óháð einingafjölda þeirra, þar sem útgjöld hlytu að vera lægri þegar nemendur væru ekki í fullu námi við skólann.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 16. maí 2012, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í ljósi 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 taldi umboðsmaður rétt að A bæri erindi sitt undir Háskóla Íslands, og þá eftir atvikum háskólaráð, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2008 og 15. gr. laga nr. 63/2006, um háskóla, áður en hann tæki það til meðferðar. Hann lauk því erindinu en tók fram að A gæti leitað til sín að nýju teldi hann sig enn beittan órétti að fenginni niðurstöðu Háskóla Íslands.