Samgöngumál. Sveitarfélög.

(Mál nr. 12393/2023)

Kvartað var yfir reglum um bílastæðakort fyrir íbúa í Reykjavík, þ.e. að óheimilt sé að gefa út íbúakort til íbúa í námsmannaíbúð.  

Ekki varð ráðið að athugasemdir vegna málsins hefðu verið bornar undir Reykjavíkurborg og afstaða hennar þannig fengin. Enn fremur þyrfti að leita til innanríkisráðuneytisins áður en til kasta umboðsmanns gæti komið.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. október 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 3. október sl., sem beint er að Bílastæðasjóði Reykjavíkur og lýtur að reglum nr. 370/2021 um bílastæðakort fyrir íbúa í Reykjavík. Af kvörtun yðar verður ráðið að þér séuð ósátt við b-lið 2. gr. reglnanna, en þar segir að ekki sé heimilt að gefa út íbúakort til íbúa í íbúð sem er skilgreind námsmannaíbúð.

Í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 segir meðal annars að sveitarstjórn sé heimilt að setja reglur um notkun stöðureita og gjaldtöku fyrir hana á landi í umráðum hennar. Með stoð í þessari lagagrein hefur Reykjavíkurborg sett reglur nr. 370/2021 sem birtar voru í B-deild Stjórnartíðinda 8. apríl 2021. Fyrir liggur, sbr. tölvubréf starfsmanns Reykjavíkurborgar til yðar 31. ágúst sl. sem er á meðal gagna sem bárust með kvörtun yðar, að umsókn yðar um íbúakort var hafnað með vísan til framangreinds b-liðar 2. gr. reglna nr. 370/2021.

Þar sem ég hef skilið kvörtun yðar á það leið að hún lúti öðru fremur að téðu fyrirkomulagi sem gert er ráð fyrir í reglum borgarinnar um íbúakort, þ.e. að óheimilt sé að gefa slíkt kort út til íbúa sem búa í námsmannaíbúðum, tek ég fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns Alþingis ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds fyrr en æðra stjórnvaldið hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæði þetta er byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Ekki verður ráðið af kvörtuninni eða gögnum sem henni fylgdu að þér hafið borið athugasemdir yðar upp við Reykjavíkurborg og fengið afstöðu borgarinnar til þeirra. Að þessu leyti er jafnframt vakin athygli á því að umferðarlög heyra undir málefnasvið innviðaráðherra sem fer jafnframt með stjórnsýslueftirlit með sveitarfélögum á grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Eins og atvikum er hér háttað, og með hliðsjón af framangreindum lagasjónarmiðum, tel ég því ekki rétt að taka kvörtun yðar til meðferðar að svo stöddu. Ég bendi aftur á móti á að þér getið freistað þess að leita til mín á ný að fenginni afstöðu Reykjavíkurborgar, og eftir atvikum innviðaráðherra, til athugasemdanna og verður þá tekin afstaða til þess hvort og að hvaða marki málefnið getur komið til athugunar af hálfu umboðsmanns.

Í ljósi þess sem að framan hefur verið rakið eru ekki uppfyllt skilyrði til að ég taki erindi yðar til frekari meðferðar. Er umfjöllun minni um mál yðar því hér með lokið sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.