Lögreglu- og sakamál.

(Mál nr. 12525/2023)

Kvartað var yfir því að lögreglumenn hefðu farið í eftirlitsferð í sumarbústað við leit að ákveðnum einstaklingum.  

Þar sem erindið hafði hvorki verið lagt fyrir dómsmálaráðuneytið né nefnd um eftirlit með lögreglu voru ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður fjallaði um það.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. janúar 2024.