Kvartað var yfir ákvörðun Samgöngustofu þar sem fallið var frá fyrirhugaðri sviptingu flugskírteinis og gerðar margvíslegar athugasemdir við málsmeðferðina, undirbúning ákvörðunarinnar og rannsókn málsins.
Þar sem athugasemdirnar höfðu ekki verið bornar undir innviðaráðuneytið voru ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður fjallaði frekar um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. júlí 2024.
Vísað er til kvörtunar yðar 25. júní sl. yfir ákvörðun Samgöngustofu 31. maí sl. þar sem fallið var frá fyrirhugaðri sviptingu flugskírteina yðar. Í kvörtun yðar gerið þér margvíslegar athugasemdir við málsmeðferð Samgöngustofu við undirbúning ákvörðunarinnar, m.a. við rannsókn málsins. Þá ræð ég af kvörtun yðar að hún lúti einnig að því hvernig Samgöngustofa hagar almennt stjórnsýslu sinni.
Af ákvörðun Samgöngustofu verður ráðið að til skoðunar hafi verið hvort rétt væri að svipta yður flugskírteinum á grundvelli 237. gr. laga nr. 80/2022, um loftferðir, þar sem þér hefðuð flogið loftfarinu X í haftasvæðinu BIR60 24. mars sl. Í ákvörðuninni kom m.a. fram sú afstaða að ef ætlunin væri að stunda mælingar og rannsóknir í flugi væri um sérhæfða starfsemi að ræða sem ekki gæti talist einkaflug. Með vísan til þessa var það niðurstaða stofnunarinnar að þér hefðuð með téðu flugi yðar brotið gegn 12. gr. reglugerðar nr. 216/1982, um heimasmíði loftfara, þar sem fram kemur að slíkt loftfar megi eingöngu nota til einkaflugs. Þá segir í niðurlagi ákvörðunarinnar að Samgöngustofa hafi farið yfir málið heildstætt og með vísan til þess að um fyrsta brot væri að ræða og regluverkið væri ekki eins skýrt og best yrði á kosið væri það mat hennar að ekki væri tilefni til að fella flug- og flugmannsskírteini yðar niður tímabundið. Var því fallið frá fyrirhugaðri ákvörðun um sviptingu.
Af þessu tilefni tek ég fram að samkvæmt 240. gr. laga nr. 80/2022 er fjallað um rétt til að kæra ákvarðanir Samgöngustofu. Þar segir nánar tiltekið að ákvarðanir stofnunarinnar sæti kæru til ráðherra samkvæmt lögunum nema annað sé tekið sérstaklega fram. Þá fari um slíka málsmeðferð samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993. Samkvæmt i-lið 2. töluliðar 7. gr. forsetaúrskurðar nr. 6/2022, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, eins og honum var breytt með forsetaúrskurði nr. 2/2023, fer innviðaráðherra með yfirstjórn mála er varða samgöngur í lofti, á láði og legi, þ. á m. Samgöngustofu.
Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds, fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæðið byggist á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli sjálf fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum, sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun. Þar sem ekki liggur fyrir að þér hafið borið ákvörðun Samgöngustofu og athugasemdir yðar við málsmeðferð hennar undir innviðaráðuneytið, eftir atvikum á grundvelli stjórnsýslukæru, eru ekki skilyrði að lögum til að taka kvörtun yðar til frekari meðferðar að svo stöddu.
Ég legg þann skilning í kvörtun yðar að í henni felist einnig ábending um að tilefni kunni að vera til að fjalla um tiltekin atriði í stjórnsýslu Samgöngustofu á grundvelli þeirrar frumkvæðisheimildar sem umboðsmanni er fengin með 5. gr. laga nr. 85/1997. Ábending yðar hefur að þessu leyti verið móttekin og skráð í samræmi við verklag embættisins og verður henni haldið til haga. Farið er yfir almennar ábendingar sem umboðsmanni berast með tilliti til þess hvort tilefni sé til að umboðsmaður taki atriði sem koma fram í þeim til athugunar að eigin frumkvæði. Við mat á því er meðal annars litið til starfssviðs og áherslna umboðsmanns, hagsmuna sem tengjast málefninu sem um ræðir og málastöðu og nýtingar mannafla hjá embættinu. Verði málefnið tekið til athugunar er almennt ekki upplýst um það sérstaklega heldur er tilkynnt um athugunina á heimasíðu embættisins, www.umbodsmadur.is.
Í ljósi framangreinds læt ég athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Ef þér farið þá leið að leita til innviðaráðuneytisins með athugasemdir yðar, eftir atvikum á grundvelli stjórnsýslukæru, getið þér að henni fenginni leitað til mín á nýjan leik ef þér teljið tilefni til.