Skattar og gjöld. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 12839/2024)

Kvartað var yfir gjaldtöku af bílastæði við Egilsstaðaflugvöll.  

Þar sem Isavia ohf. og Isavia Innanlandsflugvellir ehf. starfa á grundvelli einkaréttar, þótt þau séu í eigu ríkisins, voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. júlí 2024.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar 11. júlí sl. f.h. A sem beinist m.a. að Isavia ohf. og Isavia Innanlandsflugvöllum ehf. og lýtur að gjaldtöku Isavia fyrir afnot A af bílastæði við Egilsstaðaflugvöll dagana 28. til 30. júní sl. Samkvæmt kvörtuninni mun viðtakandi gjaldsins hafa verið tilgreint einkahlutafélag en á greiðsluseðli komi fram að gjaldið sé vegna Isavia á Egilsstöðum. Þá hafi Isavia Innanlandsflugvellir ehf. umsjón með rekstri Egilsstaðaflugvallar á grundvelli þjónustusamnings við innviðaráðuneytið. Í kvörtuninni eru m.a. gerðar athugasemdir við lagagrundvöll gjaldtökunnar sem og að jafnræðis hafi ekki verið gætt við ákvörðun um fyrirkomulag hennar.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk hans að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögunum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Í 1. mgr. 3. gr. laganna er kveðið á um að starfssvið hans taki til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Þá segir í 2. mgr. sömu greinar að starfssvið umboðsmanns taki einnig til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að Isavia ohf. og Isavia Innanlandsflugvellir ehf. eru lögaðilar sem eru starfræktir annars vegar á grundvelli laga nr. 2/1995, um hlutafélög, og hins vegar laga nr. 138/1994, um einkahlutafélög. Félögin starfa því að jafnaði á grundvelli einkaréttar þótt þau séu í eigu ríkisins. Þá er ákvörðun um gjaldtöku fyrir afnot bílastæða í umsjón Isavia ohf. eða dótturfélaga þess einkaréttarlegs eðlis en ekki ákvörðun um rétt eða skyldu manna í skilningi stjórnsýslulaga. Af framangreindum sökum brestur lagaskilyrði til að kvörtun yðar verði tekin til frekari meðferðar.

Með vísan til þess sem rakið er að framan er athugun minni á kvörtun yðar lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.