Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Samgöngumál. Lögreglu- og sakamál.

(Mál nr. 12951/2024)

Kvartað var yfir því að dómsmálaráðuneytið hefði ekki svarað erindi.  

Þar sem ekki varð séð að viðkomandi hefði ítrekað erindi sitt við ráðuneytið var bent á að gera það áður en til kasta umboðsmanns gæti komið.

   

Settur umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. október 2024.

  

  

Vísað er til erindis yðar, f.h. A, yfir því að dómsmála­ráðuneytið hafi ekki svarað erindi hans 26. júlí 2022, þar sem hann óskaði eftir áliti og athöfnum dómsmálaráðherra varðandi útvistun á verkefnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn umferðarslysa til X ehf.

Af þessu tilefni tek ég fram að það er meginregla í stjórnsýslu­rétti að stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa. Það álitaefni hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkurt svigrúm í þessu efni. Umboðsmaður hefur almennt litið svo á að rétt sé að sá sem ber fram kvörtun vegna þess að dráttur hafi orðið á því að stjórnvald svaraði erindi frá honum leiti fyrsta kastið sjálfur til stjórnvaldsins með ítrekun á erindi og gefi því þannig færi á að bregðast við áður en leitað er til umboðsmanns með kvörtun. Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að erindi A til dómsmála­ráðuneytisins 26. júlí 2022 hafi verið ítrekað. Ég tel því ekki tilefni til að taka þetta atriði í kvörtun yðar til frekari athugunar að svo stöddu. Ég tek þó fram að umbjóðandi yðar, eða þér fyrir hans hönd, getið leitað til mín að nýju verði óhóflegur dráttur á svörum frá ráðuneytinu að undangengnum ítrekunum á því.

Að öðru leyti lít ég svo á að í erindi yðar felist ábending um atriði sem þér teljið tilefni fyrir umboðsmann að skoða nánar. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/1997 getur umboðsmaður að eigin frumkvæði ákveðið að taka mál til meðferðar. Þar segir einnig að hann geti jafnframt tekið starf­semi og málsmeðferð stjórnvalds til almennrar athugunar. Ábendingum yðar, eins og öðrum ábendingum sem umboðsmanni Alþingis berast, verður haldið til haga. Þegar umboðsmanni berast erindi sem fela í sér ábendingu eða eru að öðru leyti almenns eðlis er verklag hans þannig að farið er yfir erindið með tilliti til þess hvort tilefni sé til að taka atriði sem koma fram í því til athugunar á grundvelli 5. gr. laga nr. 85/1997. Við mat á því er m.a. litið til starfssviðs og áherslna umboðsmanns, hagsmuna sem tengjast málefninu sem um ræðir og málastöðu og nýtingar mannafla umboðsmanns. Verði málefnið tekið til athugunar í tilefni af ábendingu er þeim sem vekur máls á því almennt ekki tilkynnt um það heldur er upplýst um athugunina á vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.

Í samræmi við framangreint lýk ég hér með umfjöllun minni um mál yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Undirritaður hefur farið með mál þetta sem settur umboðsmaður Alþingis samkvæmt 3. mgr. 1. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

  

  

Helgi Ingólfur Jónsson