Kvartað var yfir að Kópavogsbær hefði ekki úthlutað viðkomandi félagslegu húsnæði.
Í svörum Kópavogsbæjar kom fram að sá dráttur sem orðið hefði stafaði meðal annars af því að viðkomandi hefði flutt lögheimili til annars sveitarfélags og upphaflega umsóknin því orðið ógild, en viðkomandi sé með umsókn frá 2022 og miðað við stöðu biðlista komi til úthlutunar hjá viðkomandi fljótlega. Í ljósi þess og þeirra skýringa sem umboðsmaður hefur fengið fyrir þeirri stöðu sem uppi eru í málaflokknum taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. maí 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 29. apríl sl. yfir því að Kópavogsbær hafi enn ekki úthlutað þér húsnæði en samkvæmt kvörtuninni hefur þú verið með samþykkta umsókn um félagslegt húsnæði hjá bænum um árabil.
Í tilefni af kvörtun þinni var Kópavogsbæ ritað bréf 5. maí sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um í hvaða farvegi mál þitt væri hjá bænum. Meðfylgjandi svar Kópavogsbæjar barst 12. maí sl. Þar kemur fram að þú sóttir fyrst um félagslega leiguíbúð 13. desember 2017 en 4. maí 2018 hafi verið skráð í kerfi sveitarfélagsins að þú hefðir flutt lögheimili þitt til Reykjavíkur og því hafi umsóknin orðið ógild. Í júní 2022 hafir þú aftur sótt um leiguíbúð hjá bænum eftir að þú fluttist aftur í Kópavoginn og er sú umsókn í gildi núna. Samkvæmt nýju stigamatskerfi, sem var innleitt í upphafi ársins, hafi umsókn þín hlotið alls 18 stig en samkvæmt reglum bæjarins sé krafist 10 stiga fyrir einstaklings án barna til að komast á biðlista. Að lokum er tekið fram að miðað við stöðu umsóknar þinnar á biðlista megi þó ætla að það komi til úthlutunar hjá þér fljótlega þó erfitt sé að segja nákvæmlega til um hvenær það geti orðið.
Ég tek fram að þótt ekki komi skýrt fram í svörum Kópavogsbæjar hvenær nákvæmlega sé gert ráð fyrir að máli þínu ljúki og af úthlutun verði verður ekki betur séð en að það sé í farvegi hjá bænum. Í ljósi þess og þeirra skýringa sem ég hef fengið fyrir þeirri stöðu sem uppi er í þessum málaflokki tel ég ekki ástæðu til að aðhafast sérstaklega í máli þínu að svo stöddu en ekki liggur annað fyrir en að tafir innan málaflokksins séu almennar og ekki bundnar við mál þitt sérstaklega. Hef ég því ákveðið að ljúka meðferð minni á kvörtun þinni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.
Vegna kvörtunar þinnar og þeirra stöðu sem er uppi í máli þínu tel ég rétt að benda þér á að samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er heimilt að kæra óhæfilegar tafir á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Í ljósi þessa bendi ég þér á að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, er heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir teknar samkvæmt þeim lögum til úrskurðarnefndar velferðarmála. Af þessu leiðir að þú átt þann kost að kæra tafir á málsmeðferð Kópavogsbæjar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Fari svo að þú gerir það og ert ósátt að fenginni niðurstöðu nefndarinnar, getur þú leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.
Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á máli þessu lokið.