Starfssvið umboðsmanns Alþingis. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 307/2025)

A skoraði á utanríkisráðherra að senda bréf á framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Þar sem ekki var um að ræða ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem beindist sérstaklega að A eða varðaði hugsmuni A eða réttindi umfram aðra taldi umboðsmaður að erindið uppfyllti ekki skilyrði til að vera tekið til meðferðar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. júlí 2025.

  

  

Vísað er til erindis þíns til umboðsmanns Alþingis 14. júlí sl. þar sem skorað er á utanríkisráðherra að senda bréf á framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Fjallað er um skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar í 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu einhvers þess aðila, sem fellur undir starfssvið umboðsmanns Alþingis, kvartað af því tilefni til umboðsmanns. Í ákvæðinu er almennt talin felast sú krafa að fyrir liggi ákveðin ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem ber fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni viðkomandi eða réttindi hans umfram aðra. 

Að framangreindu virtu og þar sem erindi þitt varðar áskorun til utanríkisráðherra uppfyllir erindi þitt ekki skilyrði til þess að vera tekið til meðferðar hjá umboðsmanni.

Með hliðsjón af framangreindu, og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, læt ég málinu lokið.