Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 286/2025)

A kvartaði yfir því að dómsmálaráðuneytið hefði ekki svarað erindi hans.

Þar sem A upplýsti að honum hefði borist svar frá dómsmálaráðuneytinu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. ágúst 2025.

  

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 2. júlí sl. yfir því að erindi þínu til dómsmálaráðuneytisins, um [...], hefði ekki verið svarað. Eftir því sem fram kemur í kvörtuninni var erindinu beint til ráðuneytisins í kjölfar fundar sem þú áttir með aðstoðarmanni ráðherra og skrifstofustjóra í ráðuneytinu 23. apríl sl. Var erindið ítrekað 16. maí sl.

Með tölvupósti 18. ágúst sl. upplýstir þú að dómsmálaráðuneytið hefði svarað erindinu með tölvupósti sama dag.

Þar sem kvörtun þín lýtur að því að erindi þínu hafi ekki verið svarað og þar sem það hefur nú verið gert tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Með hliðsjón af framangreindu lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.