Kvartað var yfir sektargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðisins sem viðkomandi gekkst undir þar sem hann féllst á greiðslu sektar og upptöku skotvopns og hljóðdeyfis.
Lögreglustjórinn greindi umboðsmanni frá því að eftir yfirferð á málinu hefði verið talið rétt að afturkalla sektargerðina í málinu og fella það niður. Lögreglu hefði ekki verið heimilt að taka rannsókn málsins upp að nýju eftir að henni hafði verið hætt enda hafi ekki komið til ný gögn. Þar sem lögreglustjóri hafði afturkallað fyrri ákvörðun taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. mars 2025.
Vísað er til kvörtunar þinnar 5. desember 2024 yfir sektargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sem þú gekkst undir 1. nóvember 2024, en með henni féllst þú á greiðslu sektar og upptöku skotvopns og hljóðdeyfis. Meðal gagna málsins er ákvörðun lögreglustjóra um afturköllun skotvopnaleyfis en starfsmaður umboðsmanns leiðbeindi þér símleiðis 27. janúar síðastliðinn um heimild til að kæra þá ákvörðun til dómsmálaráðuneytisins og munt þú hafa lagt slíka kæru fram. Áður en lengra er haldið og með vísan til þess að af samskiptum þínum við umboðsmann verður ráðið að þú sért ósáttur við afturköllun skotvopnaleyfis er rétt að árétta að teljir þú þig enn rangsleitni beittan að fenginni niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins í því máli getur þú leitað til mín með kvörtun þar að lútandi.
Í tilefni af kvörtun þinni var lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu ritað bréf 19. desember 2024 þar sem þess var farið á leit við lögreglustjóra að umboðsmanni yrðu afhent afrit af öllum gögnum málsins. Bárust gögnin 21. janúar síðastliðinn og frekari gögn 23. sama mánaðar. Með öðru bréfi 11. febrúar síðastliðinn var þess óskað að lögreglustjóri veitti umboðsmanni upplýsingar um hvort bréf, sem var meðal gagna lögreglustjóra og var þess efnis að rannsókn á máli þínu hefði verið hætt, hefði verið sent til þín. Þá var þess óskað að veittar yrðu skýringar á því á hvaða lagagrundvelli rannsókn máls þíns, sem hafði verið hætt í samræmi við efni fyrrnefnds bréfs, hefði hafist að nýju. Svar lögreglustjóra við síðara bréfinu barst 25. mars síðastliðinn og fylgir það hjálagt í ljósriti. Í því kemur fram að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi eftir yfirferð á málinu talið rétt að afturkalla sektargerðina í málinu og fella málið niður, sbr. tilkynningu þess efnis til þín 29. maí 2024. Bréfi lögreglustjóra til umboðsmanns fylgdi afrit af bréfi sviðsstjóra ákærusviðs embættisins til þín 24. mars síðastliðinn um afturköllun sektargerðar þar sem tilkynnt er að sektargerðin hafi verið felld úr gildi og að ákvörðun lögreglustjóra frá 29. maí 2024 um að hætta rannsókn standi. Í því bréfi kemur fram að lögreglu hafi ekki verið heimilt að taka rannsókn málsins upp að nýju eftir að henni hafði verið hætt enda hafi ekki komið til ný gögn, sbr. 3. mgr. 57. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.
Þar sem kvörtun þín lýtur að framangreindri sektargerð og fyrir liggur að lögreglustjóri hefur afturkallað hana tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.