Kvartað var yfir riftun sveitarfélags á samningum um afnot á landi. Þá var jafnframt kvartað yfir svörum sveitarfélagsins við erindi sem til þess var beint.
Þar sem riftun samninganna og þær ráðstafanir sem gripið var til í kjölfar hennar féllu utan þess ársfrests sem mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann Alþingis voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að sá þáttur kvörtunarinnar yrði tekinn til frekari athugunar. Þá taldi umboðsmaður sig ekki hafa forsendur til þess að gera athugasemdir við þau svör sem sveitarfélagið hefði veitt. Að lokum taldi umboðsmaður að ágreiningur um mögulega bótaskyldu sveitarfélagsins væri réttarágreiningur sem eðlilegt væri að dómstólar leystu úr.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 25. nóvember 2025.