A kvartaði yfir starfsháttum og framgöngu lögreglu er hún var vistuð í fangageymslum.
Þar sem þau atvik, sem kvörtunin laut að, féllu utan þess ársfrests, sem mælt er fyrir um í lögum um umboðsmann, var umboðsmanni ekki fært að taka málið til frekari athugunar. Umboðsmaður vakti þó athygli A á að hún gæti freistað þess að bera málið undir nefnd um eftirlit með lögreglu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. nóvember 2025.