A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu Vinnumálastofnunar á umsókn hans um atvinnuleyfi á Íslandi.
Í tölvupóstsamskiptum A við stofnunina, sem voru meðal gagna málsins, kom fram að tafirnar mætti m.a. rekja til fjölgunar mála í málaflokknum og tímabundins skorts á starfsfólki. Þar kom einnig fram að fyrirhugað væri að ljúka máli A innan nánar tilgreindra tímamarka. Að þessu gættu, og þar sem tafirnar væru almennar en ekki bundnar við mál A sérstaklega, taldi umboðsmaður sig ekki hafa forsendur til að aðhafast frekar í málinu að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 26. nóvember 2025.